Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Sigrún og Keli
  • Staður: Kaupmannahöfn

Tenglar

Pancreas

28. maí 2007 klukkan 17:07
Jæja, ætli sé ekki komið tími á að ég bloggi. Það er að segja aðeins lengra blogg en á laugardaginn þegar ég var "emotionally high" (eins og einhver sagði) af því að hlusta á nýja diskinn með Blonde Redhead.

Brisið í mömmu minn er nú hæst á lista mínum yfir líffæri sem ég hata (ekki það að sá listi sé langur...). Planið var sem sagt að mamma og pabbi kæmu í dag til Köben, mitt helsta tilhlökkunarefni síðustu daga. En í gærkvöldi tók brisið hennar mömmu aftur upp á því að fara með meltingarensímin í algjört rugl (eða hvað það er sem er að valda þessu) og aumingja mamma mín er komin upp á spítala á morfín og vökva í æð við brisbólgu. Þetta er nú ekki jafn slæmt og síðast, en ekkert sniðugt engu að síður.

Ég er sem sagt búin að vera frekar annars hugar við lesturinn í dag, var meira að lesa um pancreatitis á netinu. Þannig að við Keli fórum þá bara í hjólatúr í sólinni og enduðum í Kongens have þar sem við lásum í bókunum okkar og svitnuðum í sólskininu. Það er samt ekki alveg besta leiðin til að vera afkastamikill við lestur að sitja í garði þar sem flær og maurar keppast við að komast upp á blaðsíðurnar og sólin sker í augun. En það er allt í lagi svona öðru hvoru. Samt kannski best að fara að stunda bókasöfnin frekar.

Það er samt frekar fyndið hvað mikið af samtölum okkar Kela um þessar mundir eru um hluti eins og acetylcholine og parasympatiska taugakerfið eða eitthvað álíka. Maður verður orðinn að versta fagnörda áður en langt um líður. Kannski best að fara að passa sig.

Annars er bara mánuður núna þangað til ég kem heim. Manni finnst það samt vera lengra þegar stóra prófið er ennþá eftir og lestur tengdur því. En það verður dejligt að koma heim og hitta alla.

Keli og Dóri eru úti að skokka og ég er búin að elda einhverja furðulega kássu úr hrísgrjónum, tómötum og kjúklingachilipulsum frá kaupmanninum á horninu af því að hinir kristnu eru með lokað. Hún er samt fín á bragðið...

Kannski ég líti aðeins á taugakerfið blessaða áður en Keli kemur. Allir að muna að senda mömmu minni góða strauma!
Sigrún og Keli
4 athugasemdir

26. maí 2007 klukkan 19:11
Sigrún og Keli
Engin athugasemd

Viðburðarík helgi

15. maí 2007 klukkan 10:24
Jæja, þá er kosningageðveikin að baki í bili, og nenni ég ekki að eyða miklu púðri í að ræða það. Að mínu mati hefðu sumir flokkar átt skilið minna, meðan aðrir hefðu mátt fá meira, meðan enn aðrir áttu skilið nákvæmlega það litla sem þeir fengu... látum þá miklu speki duga. Vonandi sjáum við þó nýja ríkisstjórn, án det liberale Fremskridtspartie, en þannig þýða Danir nafn Framsóknarflokksins. Afar áhugaverð þýðing, veit ekki með ykkur, en ég hef aldrei litið á framsókn sem frjálslyndan framfaraflokk. En að skemmtilegri hlutum.

Á föstudaginn var afmæli hjá Védísi í litlu huggulegu íbúðinni hennar í Frederiksberg. Mjög gaman þar og skemmtilega blandaður hópur á svæðinu, Danir, Norðmenn og Íslendingar. Veitingarnar voru glæsilegar, og voru Íslendingarnir sérlega duglegir við að nýta sér það. Þar að auki fékk hún Védís blandara (mixer) í afmælisgjöf, sem mikið var notaður í kokteil framleiðslu, en kokteilarnir urðu sífellt frumlegri er á leið nóttina og voru orðnir nokkuð vafasamir í restina, og innihéldu meðal annars lýsispillur og fleira góðgæti.. Afar gott partý, takk fyrir okkur Védís.

Daginn eftir vöknuðum við Halldór snemma, og hjóluðum út á Amager að spila fótbolta. Toppslagur í okkar deild, sem endaði núll-núll, sem ég hygg að séu söguleg úrslit í þessari deild þar sem leikir yfirleitt fara 5-3 eða 9-1. Halldór átti góðan leik í markinu, og ég náði mér í þriðja gula spjaldið mitt í ár, sem ætlar að reynast mér dýrt. Í okkar liði er nefninlega sú fáranlega regla að maður er sektaður um 50 danskar fyrir gult spjald, sem er ekkert voðalega sniðugt fyrir íslenskan varnarmann. Auk þess þarf maður að yfirgefa völlinn í 10 mín ef maður fær gult.. mjög dönsk regla. En 0-0 voru fín úrslit og við erum ennþá á toppi deildarinnar. Um kvöldið var svo elduð pitza og horft á eurovison og kosningavöku rúv til klukkan sex að dönskum tíma.

Á sunnudaginn svaf ég út, en sigrun fór að keppa eldsnemma. Um kvöldið fórum við svo í bíó á myndina Pans labyrint, sem er spænsk. Besta mynd sem ég hef séð í langan tíma, þannig ég er óhræddur við að mæla með henni ef þú ert búin að fá nóg af Hollywood bullinu í bili. Svo fékk ég niðurstöðuna úr tilraunadýraprófinu í gær, og náði ég því, þannig núna er einungis lyfjafræðin eftir þann 26.júni. Reyndar er bókin þar tæpar 1000 síður, og hellingur af verkefnum eftir, þannig ekki skortir mig lærdóm frekar en venjulega. En sem betur fer er komið sumar, sem þýðir að gestum fer að fjölga. Meðal annars kemur pabbi á morgun, og foreldrar Sigrúnar í næstu viku auk þess sem von er á fleira góðu fólki á næstu vikum.

En hafið það gott, vi ses!!

kveðja Keli
Sigrún og Keli
1 athugasemd

Sumar og sól

07. maí 2007 klukkan 18:24
Mamma, þetta er jakkinn sem þú gafst mér:

jakkinn minn
Takk fyrir mig!

Annars er sumarið komið hingað til Hafnar og við Keli orðin rjóð í kinnum. Á föstudaginn var síðasti fredagsbarinn fyrir próf og allur dagurinn var undirlagður. Fyrst var fótboltakeppni þar sem ég og Anette bekkjarsystir mín kepptum með nokkrum strákum og slógum í gegn, þrátt fyrir dapurt gengi liðsins, enda báðar afbragðs leikmenn. Svo var setið í sólinni með bjór og hlustað á tónlist fram á kvöld þegar farið var inn á stúdentabarinn þar sem gamanið hélt áfram. Keli var þarna líka með námsfélögum sínum þrátt fyrir að vera að fara í próf í dag - prófið gekk samt sem betur fer mjög vel.

Í dag fórum við Keli svo með Helga bróður í sendiráðið til að ná í kosningaseðla og sendum svo þrjú góð atkvæði í umslagi til sýslumannsins í Reykjavík. Það verður gaman að fylgjast með hvernig kosningarna fara, ég verð sennilega í bekkjarpartíi hjá Fanneyju bekkjarsystur þannig að við fylgjumst með þessu saman. Maður vonar bara það besta!

Jæja, ég hef nú svo sem ekkert merkilegt að segja, er ekki best að fullkomna þetta með annari mynd af sjálfri mér, fyrst ég er byrjuð á annað borð. Erum við ekki aðeins búin að taka lit?

Keli og Sigrún





Sigrún og Keli
5 athugasemdir

Góðir Íslendingar

01. maí 2007 klukkan 12:46
Góðan daginn gott fólk, orðið ansi langt síðan maður bloggaði síðast, en nú er maður dottinn í prófalestur enn eina ferðina, og á einmitt ekki að vera að blogga, þannig að sjálfsögðu hendir maður inn eflaust allt of langri færslu :) Hér í Kaupmannahöfn er búin að vera mikil veðurblíða síðustu vikur, sem sést einna best á húðlit okkar Íslendinganna, sem hefur smá saman verið að breytast úr snjóhvítum yfir í eplarauðan, sem síðan vonandi endar í einhverskonar brúnku á komandi vikum... Og eins og oft vill verða, er miklu léttara yfir öllum þegar veðrið er gott. Meðal annars ákvað kennarinn í isotopteknik, að ég hafi staðið mig nægilega vel á prófinu til að ná áfanganum, en það var prófið þar sem þeir stálu af mér einum klukkutíma. Mikill léttir það, og sparar bæði mér og þeim mikið vesen. Hef reyndar ekki ennþá fengið neina almennilega skýringu á því klúðri, en mér er nokkuð sama úr þessu. Sólin hefur þó ekki haft jafn góð áhrif á hann Halldór vin minn, en drengurinn (eflaust þjáður af sólsting) tók upp á því að safna í dágóða þýska mottu, sem verður ógeðslegri með hverjum deginum og hvet ég hann til þess að losa sig við hana sem fyrst. Fyrir þá sem ekki vita hvað motta er, þá erum við að tala um svona skegg:
a

I dag er fyrsti maí, þannig að lokaspretturinn í skólanum er að hefjast. Næsta próf er á mánudaginn, en svo fer ég í eitt stórt 26 júni, sem er full seint að mínu mati. Kosturinn við að vera svona lengi í skólanum er að ég næ tvennum tónleikum, sem ég annars hefði misst af. Þeir fyrri eru modest mouse, sem spila á Vega 13 júni:

http://www.youtube.com/watch?v=8RliexpCYNM

http://www.youtube.com/watch?v=erc40wCxRZo

Þann 27 júni, spila svo interpol á sama stað:

http://www.youtube.com/watch?v=re_se97Q5d4

http://www.youtube.com/watch?v=jkBAUqp6NKg

Báðar sveitir í uppáhaldi hjá mér, þannig ég get ekki beðið... En aftur að lærdómnum, bið að heilsa í bili.

Keli
Sigrún og Keli
2 athugasemdir