Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Sigrún og Keli
  • Staður: Kaupmannahöfn

Tenglar

Bonjour

23. apríl 2007 klukkan 12:46
Sæl
Það er sennilega kominn tími á blogg frá mér. Fínt að taka sér smá lestrarfrí líka. Er að lesa um hjarta-og æðakerfið þessa stundina. Afar áhugavert...

Ég er búin að fara í mitt fyrsta próf við Kaupmannahafnarháskóla. Það var úr Tidlig Patient Kontakt, sem er samskiptakúrs. Prófið var munnlegt, sem olli mér miklum áhyggjum fyrirfram, en mér tókst að sannfæra þau um að ég kynni þessi blessuðu samskiptamódel og kenningar. Þau voru líka sátt við ritgerðina sem ég skrifaði, þannig að ég stóðst þetta fyrsta próf af endalaust mörgum  sem ég á framundan. Það var bara hægt að standast eða falla, og ekki margir sem féllu, en því leiðinlegra er það, það vita allir hverjir féllu og ég er fegin að vera ekki í þeirri stöðu.

En lífið er ekki bara skóli, á laugardaginn var annar leikurinn á tímabilinu, sem við töpuðum, en það kom ekki í veg fyrir sæsongstartfest um kvöldið. Það var mikið stuð, nóg af ódýrum bjór og drykkjuleikjum til að halda okkur hressum langt fram á nótt. Gærdagurinn var ekki alveg jafn hress hjá mér, mér tókst að horfa á 6 ER þætti í röð, en ekki mikið meira en það.

Ég er í fríi alla þessa viku, nægur tími til að læra, enda nálgast stóra prófið 20. júní óðum. Ekkert annað að gera en að láta hendur standa fram úr ermum. Ég ætla að snúa mér aftur að Cardiovascular System. Veriði sæl.
Sigrún og Keli
2 athugasemdir

Berlín í myndum

11. apríl 2007 klukkan 21:03

Þá eru páskarnir búnir, og afar góð Berlínarferð að baki. Óhætt er að segja að Berlín hafi heillað okkur, afar áhugaverð borg með fullt af skemmtilegum kaffi- og veitingarstöðum í bland við mikla sögu, menningu og magnaðar byggingar. Við vorum á hóteli í austurhluta Berlínar, en sá hluti er mjög skemmtilegur, með risa kommablokkum og byggingarkrönum á hverju horni, greinilega mikil uppbygging í gangi þar. En þar sem erfitt er að lýsa því sem fyrir augun bar í orðum, látum við myndirnar tala sínu máli hér að neðan:

Menning

sprengda kirkjanmúrinn

DómkirkjanBrandenburg Tor
Dómkirkjan

Fótbolti

Skoðuðum ólympíuleikvanginn, sem Hitler lét byggja, og skelltum okkur á leik þar á laugardeginum. Það var einmitt á þessum velli þar sem úrslitaleikur HM var spilaður síðasta sumar og Zidane skallaði Materazzi eftirminnilega. Leikurinn sem við sáum endaði 1-1, og í gær sá ég í fréttunum að þjálfari Herthu Berlín var rekinn eftir leikinn, enda bauluðu áhorfendur á liðið stóran hluta leiksins.

sigrunsigrunhertha berlin

Palli hreppti Zidane veiruna svokölluðu...
ZidaneZidane II


Á laugardeginum enduðum við daginn á mjög skemmtilegum veitingarstað í Austur-Berlin. Mundi og Froskurinn fengu sér líka þennan myndarlega ís.

masdf

Verkfræðingurinn í hópnum, varð svo að prufa þennan brunn sem við rákumst á í gönguferð einn daginn...  Og já hann virkaði ekki, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
brunnur

Sem sagt, mjög skemmtileg ferð í alla staði.
Sigrún og Keli
Engin athugasemd

Hver sagði eiginlega að Danir væru ligeglad?

03. apríl 2007 klukkan 19:00
Heil og sæl, gott fólk. Nú er vorið gengið í garð af alvöru hér í Kaupmannahöfn, sem þýðir sól + 15 gráður upp á nánast hvern einasta dag, sem er ekkert nema gott mál. Því miður virðist þó veðurblíðan hafa þveröfug áhrif á skaplyndi danskra prófdómara og skrifstofufólks, sem þó er dapurt fyrir. Ég var í prófi í gær, í áfanga sem fjallar um meðferð og eiginleika geislavirkra efna, sem er eins og nafnið gefur til kynna, mjög þurr og leiðinlegur kúrs, en því miður skyldukúrs í mínu námi. Þar sem að prófið var byggt upp af löngum textadæmum, á mjög erfiðari dönsku (mjög fræðileg), sótti ég um auka próftíma í upphafi áfangans og fékk fyrir um 2 vikum bréf þar sem stóð að beiðni mín hafi verið samþykkt. Ég mætti því í prófið í þeirri meiningu að ég fengi fjóra í tíma í stað þriggja til að leysa prófið, sem var mikill léttir þar sem prófið reyndist vera óvenju langt ( 17 síður). En nei.... eftir þrjá tíma, þegar ég átti um 30-40 % af prófinu eftir, var það rifið af mér í bókstaflegri merkingu, eftir mikið rifrildi milli mín og prófdómarans. Hann hafði sem sagt ekki fengið neinar upplýsingar um að ég ætti rétt á lengri próftíma, sem mér þótti vægast sagt undarlegt. Mér tókst þó eftir mikið nöldur, og með hjálp samhúðrafullra skólafélga að fá manninn til að hringja í prófaskrifstofuna , sem sér um þessi mál og spyrjast fyrir. En skrifstofan hafði heldur ekkert heyrt, og hafði ekkert á skrá um að ég ætti rétt á lengri tíma. Ég gafst þó ekki upp, og hringdi í kennarann, sem var þá einmitt á leiðinni á svæðið að sækja prófin. Hann talaði við prófdómarann og sagðist hafa heyrt um að beiðni mín um framlengingu hafi verið samþykkt, en hann hafði því miður ekkert skjal til að sanna það (frekar en ég). Prófdómarinn bað mig því um að yfirgefa svæðið þar sem að próftíma væri löngu lokið, og ég hefði ekkert skjal frá prófaskrifstofunni til að sanna mitt mál. Ég hélt ég myndi springa af pirringi. Í dag frétti ég svo að líklega hefur einhver snillingur á prófaskrifstofunni klúðrað þessu fyrir mér, með því að gleyma að færa upplýsingarnar um mig inn í prófaskránna (örugglega verið upptekinn af kökuáti eða bjórdrykkju) . Mér finnst þetta samt ótrúlega hart. Það vissu allir á svæðinu að ég hafði rétt á lengri próftíma, bæði kennarinn og samnemendur mínir en þessi blessaði prófdómari virtist vera alveg handviss um að ég væri að ljúga að honum. Þegar ég kom heim, beið mín síðan tölvupóstur frá kennaranum, þar sem hann bað mig innilegra afsökunnar á þessu öllu og lofaði mér að komast að því hvað hafði farið úrskeiðis. Hann sagði einnig að ef ég myndi falla (sem er nú frekar líklegt), myndum við finna einhverja skynsamlega lausn á þessu, sem eflaust felur í sér endurtektarpróf í sumar! Er ekki alveg að fíla það, þar sem ég nenni ekki að eyða sumrinu í að fara aftur yfir þetta einstakleg leiðinlega námsefni, sérstaklega þar sem ég var búinn að læra vel fyrir þetta próf... Hef þess vegna hugsað mér að kæra þetta, núna eftir páska, en eins og allt annað sem viðkemur skriffinnsku í Danmörku, er það flókið ferli, sem krefst mikillar vinnu og tekur óendanlega langan tíma að fara í gegnum kerfið.
En þrátt fyrir þessi ósköp, eyddi ég gærdeginum með krökkunum úr skólanum að fagna lokum þessa kúrs. Fyrst var stefnan tekin á Frederiksberg Have, þar sem við lágum í sólbaði og sötruðum smá bjór. Svo hjóluðum við nokkur yfir í Fælledparken og spiluðum fótbolta. Um kvöldið hittist svo hópurinn á stað niðri í bæ, sem heitir Drop inn. Þar var maður að nafni Stig Møller að spila fyrir gesti, en hann var víst mjög heitur í dönsku tónlistarlífið á hippatímabilinum, og aðalmaðurinn á bakvið hljómsveitina Steppeulvene sem þótti mjög svöl á sínum tíma. Staðurinn var pakkaður af fólki á öllum aldri, og stemmingin gríðarlega góð. Fólk virtist þekkja hvert einasta lag, og söng og dansaði mikið. Meðal annars var þarna gamall maður, boginn í baki og með göngustaf, sem oftar en einu sinni, fleygði stafnum upp á svið og dansaði eins og 20 ára unglamb með okkur hinum. Frekar mögnuð sjón... Sem sagt, góður endir á frekar súrum degi.
Á morgun koma svo foreldrarnir og Palli til Köben og gista eina nótt. Svo förum við til Berlínar, þar sem við hittum Munda og eyðum páskunum saman þar. Ekki hægt að segja annað en ég hlakki mikið til.. En ég bið að heilsa í bili.

kveðja Keli
Sigrún og Keli
5 athugasemdir