30. júlí 2008 klukkan 14:02
Kaupmannahöfn tók á móti okkur með 30 stiga hita og sól þegar við komum heim í fyrradag, ekki amalegt það. Það var ljúft að koma heim í hellinn sinn eftir 3 vikur á flakki. Ferðin var frábær. Sáum alveg ótrúlega margt á frekar stuttum tíma, enda vorum við orðin vel þreytt í restina. Í grófum dráttum var ferðalagið svona:
Köben-Prag-Bratislava-Búdapest-Sarajevo-Mostar-Split-Zagreb-Prag-Köben
Allar höfðu þessar borgir upp á eitthvað að bjóða en þó líkaði okkur best við Búdapest og Sarajevo. Í Búdapest sem oft er kölluð hin nýja Berlín var skemmtileg stemming í gangi. Borgin hefur verið hluti af mörgum ólíkum heimsveldum, til dæmis aust-ungverska keisaradæminu, Ottoman veldinu (tyrkir) og nú síðast Sovétríkjunum. Því er borgin mjög fjölbreytt með mikið af glæsilegum kirkjum og köstulum í bland við tyrknesk bað-, te og veitingahús með minna fallegum kommablokkum inn á milli. Reyndar hafa borgarbúar gert sitt besta til að fjarlægja öll ummerki um kommúnisma í Búdapest og víðs vegar um borgina sér maður minnismerki um þá sem börðust gegn Sovétmönnum, sum þeirra örlítið bitur. Fyrir utan þinghúsið má til dæmis sjá gröf, sem er til minningar um þá sem féllu í uppreisninni 1956. Þar má sjá þetta skilti:

Ég bendi sérstaklega á síðasta hlutann.
En borgin er ekki síður skemmtileg fyrir þá nýju hluti sem þar eru í gangi. Við vorum það heppin að hostelið okkar var staðsett í hverfi rétt utan við miðkjarnann, hverfi sem er mjög lifandi. Þar er allt fullt af skemmtilegum og frumlegum veitingarstöðum, kaffihúsum, börum, galleríum, design fatabúðum, tehúsum og næturklúbbum sem margir hverjir eru utandyra. Sem sagt mikið líf, og við eigum pottþétt eftir að heimsækja Búdapest aftur.
En ég ætla að enda þetta á nokkrum myndum frá Búdapest og Sarajevo. Við tókum alveg helling af myndum, þannig ef ykkur langar að sjá meira eða heyra ferðasöguna í heild sinni er ykkur velkomið að kíkja í heimsókn. Það er alltaf heitt á könnunni eða einn kaldur í ísskápnum hér á Rantzausgade 34.
Baðhús í Búdapest, var mjög huggulegt
Búdapest

Sarajevo

Sarajevo, kirkjugarður fyrir þá sem féllu við að verja borgina, mjög fallegur

Sarajevo, gamli bærinn

Menn að biðja í Sarajevo

Friðareldurinn í Sarajevo

Og að lokum, við á ströndinni í Split
.
Við heyrumst
Sigrún og Keli
22. júlí 2008 klukkan 20:24
http://politiken.tv/nyheder/udland/article542523.ece
Tarna vorum vid fyrir rumlega solarhring...
Radovan Karadzic sem var handtekinn i Belgrad i morgun er m.a. akaerdur fyrir ad hafa fyrirskipad mord a obreyttum borgurum i Sarajevo og ad hafa skipulagt fjoldamordin i Srebrenica sem Keli taladi um i sidustu faerslu. Fyndin tilviljun ad tad se fundur a morgun um inngongu Serba i Evropusambandid. Mjog hentug timasetning hja Serbum ad "finna" hann einmitt nuna.
Bosniskur muslimi i Kaupmannahofn hafdi tetta ad segja um handtokuna:
»Jo, jeg er da glad for det, men det er samtidig lidt af en joke. De skulle jo have udleveret ham for ti år siden. Så vi hurtigere kunne have kommet videre. Men de har holdt hånden over ham. Magtens mænd dernede. Men okay, nu er de begyndt, og så kan man blot håbe, at flere af de involverede vil ryge samme vej - også bosnierne. Alle har jo været grusomme i den her krig, hvor ingen nogensinde fandt ud af, hvad vi kæmpede om«, siger han. (http://politiken.dk/udland/article542636.ece)
Tad er spurning hversu mikla merkingu tessi handtaka hefur fyrir Bosniumenn.
Tad var ahrifamikid ad sja muninn tegar vid komum yfir landamaerin fra Bosniu til Kroatiu i rutunni i gaer, ta fyrst gekk tad upp fyrir manni hversu mikil eydilegging og fataekt er ennta i Bosniu, teir eiga ennta langt i land i ad byggja upp landid. Krootum vegnar hins vegar mjog vel, ad minnsta kosti blomstrar turisminn her i Split, full mikid ad okkar mati.... en vid njotum tess samt ad liggja i solbadi a strondinni i bili.
Sigrún og Keli
21. júlí 2008 klukkan 17:40
Ta erum vid komin til Split eftir 5 tima rutuferd i 35 stiga hita (maeli ekki med tvi). Sidustu daga hofum vid dvalid i Sarajevo eins og hun Sigrun kom ad i sidustu faerslu. Sarajevo var otrulega skemmtileg og i rauninni allt odruvisi en allar adrar borgir sem vid hofum komid til. Til ad mynda eru engar vestraenar skyndibitakedjur i borginni og neyddumst vid til ad borda bosniskan mat i hvert mal og drekka rotsterkt bosniskt kaffi en hvort tveggja likadi okkur agaetlega.
Gaerdaginn notudum vid til ad kynna okkur sogu Balkanskagastridsins og forum a safn rett utan vid Sarajevo. Tar hlustudum vid a bosniskan hermann segja okkur fra umsatrinu um borgina sem stod yfir i naestum fjogur ar. Auk tess syndi hann okkur myndefni tar sem serbneskum sprengjum rignir yfir borgina. Ad lokum syndi hann okkur leifar af gongum sem bosniumenn grofu til ad koma vopnum og mat inn i borgina. Virkilega ahrifarik frasogn, og magnad ad heyra tetta fra manni sem var sjalfur i midjunni af tessu ollu. Tad sem kom okkur samt mest a ovart var hversu bitur tessi madur var ut i Sameinudu tjodirnar, baedi fyrir adgerdarleysi teirra i Sarajevo (11.000 manns dou i umsatrinu) og ekki sidur i Sebrenica, tar sem 8000 bosniumenn voru drepnir a 3 dogum fyrir framan nefid a fridargaeslulidi Sameinudu tjodarinnar.
En nu tekur vid aflsoppun a strondinni i Split i 2-3 daga (jibbijei)... Heyrumst
Sigrún og Keli
19. júlí 2008 klukkan 16:54
Sarajevo er sudupunktur, moskur, kirkjur, synagogur, markadir, fridarminnismerki, for eftir byssukulur i veggjum, natturufegurd og mannmergd. Vid erum satt.
I lestinni a leidinni hingad las eg bok eftir Paul Auster tar sem hann fjalladi mikid um tilviljanir sem madur upplifir a lifsleidinni. Rett adan rakumst vid Keli a einu manneskjuna sem eg tekki fra Sarajevo, borg tar sem 900 000 manns bua. Adnan, sem var med mer i bekk i laeknisfraedi, fludi med foreldrum sinum til Danmerkur tegar hann var litill, tau muslimar en hann trulaus og algjorlega a moti truarbrogdum, haettur i laeknisfraedi og ad byrja i verkfraedi i haust. Adnan var hissa ad sja okkur her. -Hvad erud tid eiginlega ad gera her?, spurdi hann. Hann er her i heimsokn hja aettingjum i trjar vikur. Adnan skildi ekki alveg hvers vegna vid komum hingad, en tegar vid sogdumst aetla til Kroatiu naest skildi hann vel: Ah, strondin. Ekki tykir manni skritid tegar turistar koma til Islands, samt hofum vid ekki brot af teirri menningu og sogu sem tau hafa herna. Adnan er lika kannski ekki madurinn sem myndi fara a interrail.
Vid verdum herna i 2 naetur i vidbot, svo holdum vid til Split i Kroatiu. Tangad er svolitid flokid ad fara tar sem lestarkerfid i Bosniu er ekki sem best. En med sma pusluspili aetti tad ad ganga.
Sigrun
Sigrún og Keli
15. júlí 2008 klukkan 07:57
Interrail er hafid og Prag og Bratislava ad baki. Vid erum stodd i Budapest nuna og hun virkar virkilega vel a okkur, vid komum i gaer i rutu fra Slovakiu vegna verkfalla hja lestarfyrirtaekjum i Ungverjalandi. Hingad til hofum vid upplifad tekkneskt gullas (ojojoj), gamla baeinn i Prag, fullar breskar stelpur a hosteli i Bratislava, lumskan leigubilsstjora, vinalega dani, gott vedur og slaemt vedur, god hostel og slaem hostel og fallegar borgir, tott Bratislava hafi lika haft sinar skuggahlidar. Vid hofum tad alla vega gott og nuna bidur Budapest eftir okkur. Kvedja, Sigrun og Keli
Sigrún og Keli
30. júní 2008 klukkan 10:46
Nú er langt síðan ég krufningarnámskeiðið kom og fór og hugsanlega kominn tími á færslu hérna. Ég á samt í svolitlum erfiðleikum með að ákveða hvað ég á að skrifa hérna, margir skrifa bara hugleiðingar á bloggin sín, ekkert um hversdaginn. Hugsunin með þessu bloggi í byrjun var að leyfa vinum og vandamönnum á fróni að fylgjast með okkur, en það verður kannski óáhugavert í lengdina, og eftir því sem maður samsamast lífinu hér í Köben verður erfiðara að finna út hverju maður á að segja frá. En það verður bara að ráðast hvað við skrifum. Þessi síða hefur enga stefnu aðra en það sem gerist í kollunum á okkur hverju sinni.
Ég er komin í sumarfrí. Búin með erfiða önn í skólanum og tveggja vikna klíník á sjúkrahúsinu í Köge. Ég get ekki sagt að ég sé frelsaður læknanemi sem hefur fundið köllun sína, en hingað til virkar læknisstarfið mjög áhugavert og krefjandi og það heldur mér við efnið í bili.
Framundan er góður tími. Ég vinn tvær næturvaktir á morgunn og hinn og svo koma foreldrar mínir í heimsókn, ég hef ekki séð þau síðan um jólin þannig að ég hlakka mikið til að sjá þau. Þann 11. fljúgum við Keli til Prag og þaðan þangað sem lestirnar leiða okkur. Í byrjun ágúst kem ég til Íslands og verð í mánuð. Bekkjarsystur mínar héðan koma í heimsókn til Íslands og planið er þá að keyra hringinn.
Sem sagt, bjartir tímar framundan. Sigrún
Sigrún og Keli
10. mars 2008 klukkan 15:12
Ég var að kaupa mér krufningarsett, hanska og hlífðargleraugu.
Á föstudaginn mun ég kryfja mitt fyrsta mannslík.
Ætli ég muni verða himinlifandi yfir því að sjá alla anatómíuna loksins almennilega í þrívídd eða enda í gólfinu? Ég er ekki viss.
Sigrún
Sigrún og Keli
22. febrúar 2008 klukkan 14:44
Ég var að versla í matinn í Aldi áðan þegar kona með slæðu bað mig um aðstoð. Hún hélt á sjampóflösku en spurði mig hvort að þetta væri ekki hárnæring. Ég leit hissa á flöskuna þar sem stóð skýrum stöfum SHAMPOO og sagði að þetta væri sjampó, en benti henni á flösku með hárnæringu í hillunni. Hún þakkaði pent fyrir.
Það var ekki fyrr en í röðinni að kassanum að það rann upp fyrir mér. Konan kunni ekki að lesa.
Sigrún og Keli
15. febrúar 2008 klukkan 16:49
Það er svo gott að vakna þessa morgna sem maður Nennir. Í gærmorgun vaknaði ég með bros á vör, vaskaði upp, sléttaði á mér hárið og málaði mig smá fyrir skólann, pússaði stígvélin mín og kláraði kaflann sem ég þurfti að lesa fyrir lestrarhópsfund. Kom heim úr skólanum og fór beint á æfingu, þaðan beint heim til Röggu og svo á fimmtudagsbar á Nexus. Þar vorum við lengi frameftir með góðu fólki og svo í eftirpartíi þar á eftir.
Í dag Nenni ég ekki. Fór samt í skólann og hitti Anette þar sem planið var að læra, en mest af tímanum fór í spjall. Fór svo í tíma um bein, vöðva og taugar í handleggnum (þar sem við áttum að kynnast okkar eigin handlegg betur, til að tengja við það sem við erum að lesa) og nennti ekki fylgjast með. Núna ætti ég að fara upp í CBS að sækja hjólið mitt, en held að ég fái mér kannski bara blund í staðinn. Nenni ekki einu sinni að versla í matinn, verð samt að gera það áður en Nettó lokar.
Annars er þetta að frétta síðan síðast:
Ég fór í skíðaferð til Val Thorens með skólanum í 10 daga í janúar, kom heim 3. feb með flensu, en góðar minningar.
Haldið var upp á afmælið mitt með pompi og pragt síðasta föstudag þar sem danskir og íslenskir vinir blönduðust vel.
Ég kláraði síðustu skylduvaktirnar mínar fyrir FADL í vikunni. Húrra fyrir því!
Keli er farinn til Íslands núna í 2 vikur þannig að ég er ein í kotinu. Hann er nefnilega í fríi í febrúar en byrjar í mastersverkefninu 1. mars.
Nú nenni ég þessu ekki lengur. Þangað til næst. Sigrún
Sigrún og Keli
17. janúar 2008 klukkan 13:25
Loksins loksins, prófin búin, fríið byrjað og ritstíflan brostin...efniviður í mjög langan pistill, en ég skal reyna að stilla mig :) Í fyrradag var síðasta prófið í náminu mínu. Er búinn með eitt og hálft ár í stífum kúrsum þannig þetta var mjög langþráður dagur. Planið var að sjálfsögðu að enda þetta með stæl, prófin hingað til hafa gengið mjög vel og þá sérstaklega frumulíffræðin í desember, en það gekk víst ekki í þetta skiptið. Jú ég náði, sem er svo sem áfangi út af fyrir sig, en skorið var ekki upp á marga fiska. Frekar biturt, sérstaklega þar sem fólkið sem ég var að læra með brilleraði og var að fá toppeinkunnir. Fyrir keppnismanninn Þorkel er erfitt að kyngja þessu, en maður verður bara að sætta sig við það. Þetta var ekki minn dagur. Prófdómarinn grillaði mig gjörsamlega, en þeir eiga þetta til hérna úti í þessum munnlegu prófum að þefa uppi eitthvað sem maður er óöruggur með og spyrja endalaust um það. Þá kann ég betur við skriflegu prófin...En ekki nenni ég að velta mér mikið upp úr þessu, prófið er búið og ég ætla ekki að láta einhvern fúlan danskan kall skemma fyrir mér þá góðu tíma sem eru framundan :)
Er sem sagt kominn í frí, sem er snild. Vaknaði til dæmis í morgun, borðaði morgunmat með Sigrúnu, rölti svo með hjólið mitt í viðgerð og settist niður á Tjili-Pop (kaffihúsið hér við hliðinná) með kaffi og las politiken. Er svo að þvo núna og á leiðinni út að hlaupa. Enda svo daginn á því að horfa á Svíþjóð-Ísland í góðra vina hópi. Frekar nice dagur :) Allavega skemmtilegra en að sitja frá 10-10 upp á bókasafni...
Stefnan er svo tekin á London í lok janúar, en ég og Halldór ætlum að heimsækja hann Bönna vin okkar sem er í námi þar. Ég hlakka mikið til þess, langt síðan við höfum verið þrír saman vinirnir og London er alls ekki slæmur staður fyrir slíka endurfundi. Komum til með að vera þar í fimm daga og endum á því að fara á West Ham-Liverpool.
Svo er febrúar ennþá óráðinn. Get nefninlega ekki byrjað á mastersverkefninu fyrr en í mars, þannig ég er líklega að fara að fá mér vinnu í febrúar, en hvort það verði á Íslandi eða Danmörku á ennþá eftir að ráðast.
Að lokum er rétt að geta þess í ljósi síðastu færslu hjá henni Sigrúnu minni að stelpunni gekk frábærlega í prófinu. Hún fékk topp einkunn (best í sínum bekk), sem er ekki auðvelt í læknisfræði, sérstaklega þegar maður er að bera sig saman við Dani sem eru að læra þetta allt saman á móðurmálinu. Ég er allavega stoltur af henni :) Bið að heilsa
Keli
Sigrún og Keli